17.10.2008 | 15:18
Öfgar
Vá ég fer nú bara næstum því að gráta við svona frétt, að fólk skuli vera svona þröngsýnt að úthýsa manninum þar sem hann er Íslendingur. Bretarnir (og nú verð ég að segja sumir til að vera ekki alveg eins og þessi auma Breska stelpa) eru nú kannski aðeins of öfgafullir í þessum málum. Ég á frænda í námi í London og einn kennarinn hans sagði í tíma þar sem hann var að það ætti að brenna Ísland. Heldur langt gengið. Og það líka að maðurinn var búinn að safna sér fyrir náminu en það allt fokið út í buskann, það er ótrúlega sorglegt.
Ég er nú samt sammála mömmu hans, við ættum nú aðeins að líta í eigin barm og skoða hvaða álit við höfum á vissum þjóðernum, við höfum kannski verið óréttlát stundum.
Úthýst vegna þjóðernis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Bretarnir (og nú verð ég að segja sumir til að vera ekki alveg eins og þessi auma Breska stelpa) eru nú kannski aðeins of öfgafullir í þessum málum"
Er...Excuse me........have you read the Blogs recently written by Icelanders about the Brits.....?
zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
Good luck
Fair Play (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 15:33
Þýskarar, bretar, norsarar, danir og svíar; þetta eru allt saman helvítis nazistar!
corvus corax, 17.10.2008 kl. 15:39
Ég sagði að við mættum líta í eigin barm, bara skerpa á því ef þú hefur ekki skilið það.
Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir, 17.10.2008 kl. 16:00
Það er alveg rétt, við höfum oft verið harðorð um margar þjóðir.
- "Bylur hæst í tómri tunnu."
Jóhanna Þorsteinsdóttir, 17.10.2008 kl. 17:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.