Alltaf í Reykjavík

Jæja það var enn ein ferðin til Reykjavíkur í dag - Alla leið - í þetta sinn til að versla spariskó á verðandi fermingarbarnið. Það er Rósaball í þessum skrifuðu orðum í Grunnskólanum í Hveragerði og Arnar sem er í 10. bekk fór og sótti dömu úr 8. bekk og fékk til þess bílstjórann Jón Helga sem er ansi reffilegur og kann sitt fag vel. Steinþór sem er í 8. bekk var sóttur hingað heim af dömu úr 10. bekk og var sú svona líka fín að fínni gerast þær varla. Vonandi skemmta þau sér vel.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband