30.10.2008 | 02:22
Reddum þessu.
Það má redda þessu með því t.d. að láta okkur bara borga miklu miklu hærri skatta og hækka og hækka vexti svo við borgum helmingi meira í húsnæðislánunum okkar og svo framvegis............við gerum hvort sem er bara allt sem okkur er sagt að gera. Erum svo vel upp alin. Tuðum kannski smá úti í horni en það nær svo ekkert lengra. Við erum líka orðin vön himinháum vöxtum á yfirdráttunum og kreditkortunum svo að við ættum nú ekkert að sjokkerast!!!!
Eða.....bara byrja upp á nýtt á núlli, fella niður allar skuldir og svoleiðis og byrja upp á nýtt.
Æi þetta er orðið svo leiðinlegt og verður bara ömurlegra eftir því sem meira heyrist að smá kaldhæðni ætti ekki að gera neitt til.
Efnahagur myndi hrynja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og þetta lofaði hann fólkinu í síðustu kosningum.
- Lækka skatta einstaklinga enn frekar.
- Fella niður almenna tolla og lækka enn frekar vörugjöld á innflutningi en vinna að lækkun tolla á landbúnaðarvörum í samræmi við alþjóðasamþykktir.
- Fella niður stimpilgjöld.
- Lækka álögur á bifreiðaeigendur.
- Lækka skatta fyrirtækja og aðlaga skattkerfið þannig að það verði jafngott eða betra en það sem gerist hjá samkeppnisþjóðum okkar.
- Leggja áfram áherslu á að flytja verkefni úr höndum ríkis og sveitarfélaga til einkaaðila til að draga úr umsvifum hins opinbera og auka þar með samkeppni á markaðnum.
- Sjálfstæðisflokkurinn leggst alfarið gegn þeim hugmyndum sem fram hafa komið um að hækka beri fjármagnstekjuskatt. Slíkt væri tilræði við sparnað í landinu og myndi án efa leiða til flótta fjármagns úr landi, þar sem um kvikan skattstofn er að ræða.
Eikur þetta ekki á kaldhæðnina vinkona ?Johann Trast Palmason, 30.10.2008 kl. 03:55
Jú vinur, raunveruleikinn er mesta kaldhæðnin!
Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir, 30.10.2008 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.